29. janúar 2010 Tekið verður á móti pöntunum í bólusetningu frá og með 5. febrúar í síma 455 4022.
Þeir sem eiga bókaðan tíma 9. febrúar eru beðnir að koma í bólusetningu á milli 13 og 15 þann dag.
|
22. desember 2009 Jólafundur HS var haldin í sal dvalarheimilis þann 17. desember sl.
Viðurkenningar fyrir vel unnin störf og dygga þjónustu við heilbrigðisstofnunina voru veittar. Fyrir 15 ára starf fengu Kristín R. E. Jóhannesdóttir, Sigurlaug M. Maronsdóttir og Sveinn Sverrisson áletrað úr að gjöf. Fyrir 30 ára starf var Aðalbjörgu Vagnsdóttur og Guðbjörgu Pálmadóttur afhent gjafakort að upphæð 30 þúsund kr. hvorri. Starfsmenn sem láta af störfum á árinu 2009 vegna aldurs eru: Birna Halldórsdóttir, Eygló Jónsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Kristín Guðjónsdóttir, Heiðrún Friðriksdóttir og Kristín Jóhannsdóttir. Var þeim afhentur blómavöndur og kærleikskúla. Framkvæmdastjórn HS þakkar kærlega fyrir vel unnin störf.
Boðið var upp á kaffi og meðlæti og sýnd var stórmyndin Undir bláhimni sem gerð var af starfsmönnum árið 1997.
|