01. febrúar 2012 Vegna niðurskurðar fjárveitinga til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki (HS) var meðal annars áformað að loka sundlaug endurhæfingarhúss og draga verulega úr endurhæfingu. Þessi breyting var fyrirhuguð frá og með hausti 2012. Nú hefur velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson, óskað eftir því að þau áform verði dregin til baka og tryggt fjármagn til þess að svo megi verða. Framkvæmdastjórn HS fagnar þessum málalyktum enda hefði verið mjög þungbært að þurfa að grípa til þessara aðgerða.
|
16. desember 2011 Jólafundur HS var haldinn 14 . des. sl.
Viðurkenningar voru veittar fyrir gott og farsælt starf fyrir stofnunina. Fyrir fimmtán ára starf fékk Steinunn Fjóla Ólafsdóttir áletrað úr. Ágústa Eiríksdóttir, Branddís Benediktsdóttir og Jóhanna Pétra Haraldsdóttir, sem láta af störfum, fengu blómvönd og kærleikskúlu að gjöf.
Flutt var ávarp. Auður Aðalsteinsdóttir söng jólalag og sýnd var Árshátíðarmyndin 2011.
Hafsteinn Sæmundsson, forstjóri
|