 Heilsugæsla
Upptökusvæði heilsugæslunnar er Skagafjörður, utan Fljóta. Auk þess þjónar heilsugæslan ferðamönnum og nemum framhaldsskóla í héraðinu.
Starfið skiptist í höfuðatriðum í móttöku og vaktþjónustu heilsugæslulækna, heimahjúkrun og hjúkrunarþjónustu, ungbarna- og mæðravernd og skólaheilsugæslu. Einnig heyrir undir hana sjúkraflutningar, sérfræðileg læknisþjónusta og ýmis önnur heilsuvernd.
Á Hofsósi fer fram læknisþjónusta, ungbarnavernd, skólaheilsugæsla, heimahjúkrun og hjúkrunarþjónusta ásamt lyfjaafgreiðslu.
Læknamóttaka er á Hofsósi á þriðjudögum e.h.
Símaþjónusta frá skiptiborði er frá kl. 08:00-16:00 alla virka daga. Þá er tekið á móti tímapöntunum. Eftir lokum skiptiborðs er svarað í síma á sjúkradeild.
Heilsugæslulæknar og hjúkrunarfræðingar eru með móttöku alla virka daga. Vaktþjónusta lækna er allan sólarhringinn og er fyrst og fremst til að sinna bráðatilfellum og slysum.
Sérfræðingar koma reglulega á heilbrigðisstofnunina.
Yfirlæknir er Örn Ragnarsson. Yfirhjúkrunarfræðingur er Guðrún Jóhannsdóttir, sími 455 4012, netfang gudrun@hskrokur.is.
|