| |
|
28. apr. 2010
Heilbrigðisstofnunin var með bás á sýningunni Skagafjörður 2010, lífsins gæði og gleði, sem haldin var í íþróttahúsinu dagana 24. og 25. apríl.
Auk sýningarbáss var boðið upp á þrekmælingar og mælingu á blóðþrýstingi, kólesteróli og blóðsykri. |
|
16. apr. 2010
Um þessar mundir berst mikil aska frá eldgosi í Eyjafjallajökli. Askan er samsett úr fínum ögnum og stærri ögnum. Vindátt og aðrar aðstæður ráða því hvar askan fellur. Efnagreining á öskunni hefur ekki borist ennþá en vitað er að aska úr eldstöðvum þaðan getur innhaldið mikið af flúor, sem getur haft bæði bráð- og langvinn eituráhrif á grasbítandi dýr. |
|
19. mars 2010
Telma Ösp Einarsdóttir, Gunnar Ásgrímsson, Hjörtur Ragnar Atlason og Hildur Heiðdís Þrastardóttir héldu hlutaveltu í anddyri Skagfirðingabúðar 15. og 16. mars Ágóðann kr. 8.940 færðu þau Heilbrigðisstofnuninn.
Myndin er af Telmu og Gunnari sem afhentu Herdísi Klausen, hjúkrunarforstjóra peningana.
|
|
05. mars 2010
Heilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta. Bólusetning er besta vörnin gegn svínainflúensunni og nóg er til af bóluefni í landinu. |
|
12. feb. 2010
Heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, kom í heimsókn til okkar á HS föstudaginn 12. febrúar. Framkvæmdastjórn sýndi henni og föruneyti hennar stofnunina og átti síðan fund með ráðherra og starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins.
Ráðherra mætti síðar um daginn á mótmælafund sem nýstofnuð hollvinasamtök HS héldu við anddyri stofnunarinnar og tók þar við undirskriftum íbúa Skagafjarðar þar sem mótmælt er fyrirhuguðum niðurskurði á HS.
|
|
29. jan. 2010
Tekið verður á móti pöntunum í bólusetningu frá og með 5. febrúar í síma 455 4022.
Þeir sem eiga bókaðan tíma 9. febrúar eru beðnir að koma í bólusetningu á milli 13 og 15 þann dag.
|
|
22. des. 2009
Jólafundur HS var haldin í sal dvalarheimilis þann 17. desember sl.
Viðurkenningar fyrir vel unnin störf og dygga þjónustu við heilbrigðisstofnunina voru veittar. Fyrir 15 ára starf fengu Kristín R. E. Jóhannesdóttir, Sigurlaug M. Maronsdóttir og Sveinn Sverrisson áletrað úr að gjöf. Fyrir 30 ára starf var Aðalbjörgu Vagnsdóttur og Guðbjörgu Pálmadóttur afhent gjafakort að upphæð 30 þúsund kr. hvorri. Starfsmenn sem láta af störfum á árinu 2009 vegna aldurs eru: Birna Halldórsdóttir, Eygló Jónsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Kristín Guðjónsdóttir, Heiðrún Friðriksdóttir og Kristín Jóhannsdóttir. Var þeim afhentur blómavöndur og kærleikskúla. Framkvæmdastjórn HS þakkar kærlega fyrir vel unnin störf.
Boðið var upp á kaffi og meðlæti og sýnd var stórmyndin Undir bláhimni sem gerð var af starfsmönnum árið 1997.
|
|
08. des. 2009
Međ ţeirri sendingu verđur bólusett eins og hér segir:
Ţeir sem áttu bókađan tíma ţriđjudaginn 15/12 eru beđnir um ađ koma í bólusetningu fimmtudaginn 17/12 á sama tíma.
Einnig verđur bólusett ţriđjudaginn 22/12. Tekiđ verđur á móti pöntunum 17/12 í síma 455 4022.
Nćsta sending af bóluefni er vćntanleg 8/1. Tekiđ verđur á móti pöntunum 8/1 í síma 455 4022. |
|
09. okt. 2009
Nú er komið að árlegri bólusetningu gegn inflúensu
Bólusett er alla virka daga frá 8-16
|
|
26. mars 2009
Ársskýrsla 2008 |
|
26. mars 2009
Þessir dugmiklu strákar héldu tombólu á dögunum og færðu Heilbrigðisstofnuninni ágóðann, kr. 18.104. Þeir eru, talið frá vinstri: Jóhann Daði, Jónas Aron, Mikael Alf og Daníel Ísar.
Heilbrigðisstofnunin færir þeim bestu þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.
|
|
19. feb. 2009
Ögmundur Jónasson þakkar fyrir góðan fund með sveitarstjórnarmönnum og framkvæmdastjórn HS. Hann vill taka fram að ákveðið sé að sameina heilbrigðisstofnanir í Eyjafirði en engin ákvörðun hefur verið tekin um aðrar sameiningar á Norðurlandi. Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki starfar því áfram í óbreyttri mynd.
Ögmundur biður fyrir góðar kveðjur í Skagafjörðinn.
|
|
17. feb. 2009
Heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, heimsótti okkur þann 17. febrúar sl. ásamt ráðuneytisstjóra, Berglindi Ásgeirsdóttur og þingmönnunum Jóni Bjarnasyni og Þuríði Backman. Ráðherra fór ásamt framkvæmdastjórn HS í skoðunarferð um stofnunina og átti síðan fund með fulltrúum Sveitarfélags Skagafjarðar, Akrahrepps og HS. Ögmundur sagð fundarmönnum að megintilgangur heimsóknar hans væri að hlusta á heimamenn og heyra þeirra skoðanir á sameiningu heilbrigðisstofnana og öðrum málum sem undir hans ráðuneyti heyra. |
|
19. jan. 2009
Félagar í Lionklúbbi Skagafjarðar færðu Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki tvo hægindastóla með lyftubúnaði að gjöf. Stólarnir létta bæði vistmönnum og starfsfólki lífið þar sem stólarnir gera íbúum auðvelt að setjast niður í stólinn og standa upp með hjálp lyftibúnaðar.
Framkvæmdastjórn HS þakkar Lionklúbbi Skagafjarðar þessa höfðinglegu gjöf.
Myndin er tekin þegar hressir Lion-menn afhentu gjafirnar. |
|
19. jan. 2009
Eigendur Rafsjár þau Frímann og Auður færðu HS spegil að gjöf. Speglinum var fundinn staður í anddyri endurhæfingarhúss. Eru þeim hjónum færðar kærar þakkir fyrir gjöfina. |
|
13. jan. 2009
Heilbrigðisráðherra kom ásamt föruneyti í heimsókn á Heilbrigðisstofnunina. Hann skoðaði starfsemina og átti fund með framkvæmdastjórn og byggðaráði Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Meginefni þess fundar var sameining stofnana í heilbrigðisumdæmi Norðurlands.
|
|
09. jan. 2009
Vegna villandi og rangra frétta um stofnun Heilbrigðistofnunar Norðurlands og snúið hafa meðal annars að stöðu og hlutverki Sjúkrahússins á Akureyri vill framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri taka fram nokkur atriði sem stofnunin hefur haft að leiðarljósi undanfarin ár.
Það hefur verið stefna stofnunarinnar til langs tíma að veita sem mesta og besta heilbrigðisþjónustu heima í héraði. Með þetta að leiðarljósi hefur FSA haft forgöngu um að sérfræðingar þess veittu íbúum á Norður- og Austurlandi heilbrigðisþjónustu á heimaslóð. Þessi stefna er í fullu samræmi við það sem heilbrigðisráðherra hefur kynnt opinberlega í tengslum við þær skipulagsbreytingar sem framundan eru.
|
|
08. jan. 2009
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki (HS) átelur ákvörðun heilbrigðisráðherra um að leggja niður stofnunina í núverandi mynd og sameina reksturinn Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Teljum við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið allt frá því að fyrst var ákveðið að sameina stofnanirnar á Sauðárkróki og Blönduósi s.l. vor verulega ámælisverð og bera vott um lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki HS. |
|
18. des. 2008
Miðvikudaginn 17. desember komu fulltrúar Verslunarmannafélags Skagfirðinga í heimsókn á Heilbrigðisstofnunina og afhentu formlega gjafir til HS. Gjafirnar eru aðstaða til þjálfunar ofþyngdarsjúklinga, loftdýna ásamt pumpu sem gerir langlegusjúklingum lífið bærilegra og Stedy-skutla sem er notuð til flutnings sjúkra milli staða.
Andvirði gjafanna er um ein milljón króna. Heilbrigðisstofnunin færir félagsmönnum verslunarmannafélagsins alúðarþakkir fyrir sýndan stuðning og hlýhug til stofnunarinnar. |
|
12. des. 2008
Jólafundur HS var haldinn í sal Dagvistar þann 11. desember sl.
Á dagskrá fundarinns var m.a. veiting viðurkenninga til starfsmanna fyrir dygga þjónustu við stofnunina. Guðríður Stefánsdóttir og Þorbjörg Harðardóttir fá viðurkenningu fyrir fimmtán ára starf. Óskar Jónsson hefur starfað hjá okkur í þrjátíu ár. Þær sem láta af störfum eru Anna Jónsdóttir, Elísabet Kemp og Birgitta Pálsdóttir. Við þökkum þeim kærlega fyrir vel unnin störf. Hilmir Jóhannesson fór á kostum þegar hann ávarpaði sína gömlu starfsfélaga og að lokum var hin magnaða verðlaunamynd Fréttaannáll HS 2007/2008 sýnd við góðar undirtektir.
|