Hér er hćgt ađ breyta útlitinu:
-- Minnka letur | Venjulegt útlit | Stćkka letur ++
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki

Símanúmer/netföng

Neyðarsími 112

Skiptiborð 455 4000
Skiptiborð opið kl. 8 - 16
alla virka daga

Netfang: hskrokur@hskrokur.is

Laus störf

02. september 2010

Læknaritari óskast í 75% starf.  Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er t.o.m. 18. september. Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Skagafjarðar.

Hæfniskröfur:
*  Æskilegt að viðkomandi sé fullgildur læknaritari        
*  Gott vald á íslensku og ensku
*  Góð tölvukunnátta
*  Jákvætt viðmót

Upplýsingar gefur Helga Rósa Guðjónsdóttir, læknaritari, s. 455 4095, netfang: hrg@hskrokur.is

Skriflegar umsóknir sendist Herdísi Klausen, hjúkrunarforstjóra.

Rafræn umsóknarblöð eru á heimasíðu Heilbrigðisstofnunarinnar, www.hskrokur.is
Öllum umsóknum verður svarað. 

HS er reyklaus vinnustaður.

Tilkynningar

03. janúar 2010
Ný gjaldskrá um greiðslur fyrir læknisþjónustu tók gildi 1. jan. 2010.

Sérfræðikomur

15. ágúst 2009

Bjarki Karlsson,bæklunarl.
6. til 9. sept.

Andrea Andrésdóttir, barnal.
9. sept.

Sigurður Albertss.,skurðl.
27. og 28. sept.

Orri Ingþórss., kvensjúkd.
6. og 7. okt.


Jólafundur ´09

Jólafundur HS var haldin í sal dvalarheimilis þann 17. desember sl.

Viðurkenningar fyrir vel unnin störf og dygga þjónustu við heilbrigðisstofnunina voru veittar.  Fyrir 15 ára starf fengu Kristín R. E. Jóhannesdóttir, Sigurlaug M. Maronsdóttir og Sveinn Sverrisson áletrað úr að gjöf.  Fyrir 30 ára starf var Aðalbjörgu Vagnsdóttur og Guðbjörgu Pálmadóttur afhent gjafakort að upphæð 30 þúsund kr. hvorri.  Starfsmenn sem láta af störfum á árinu 2009 vegna aldurs eru:  Birna Halldórsdóttir, Eygló Jónsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Kristín Guðjónsdóttir, Heiðrún Friðriksdóttir og Kristín Jóhannsdóttir.  Var þeim afhentur blómavöndur og kærleikskúla.  Framkvæmdastjórn HS þakkar kærlega fyrir vel unnin störf.

Boðið var upp á kaffi og meðlæti og sýnd var stórmyndin Undir bláhimni sem gerð var af starfsmönnum árið 1997.

Fleiri myndir

 

Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki, Sauðárhæðum - Sími 455 4000 -  Fax 455 4010    Netfang:  hskrokur@hskrokur.is